Náttúruleg rakadrægni
Við leggjum mikla áherslu á hágæða rakadrægni í vörunum okkar. Noah Nappies notast einungis við lífræn & niðurbrjótanleg efni í innleggjum. Innleggin okkar eru ýmist úr hemp, bambus eða bómullar blöndu.
Hvað hentar þér?
Noah Nappies hefur komið með þrjár týpur af taubleyjum á markað. Í dag erum með tvær þeirra til sölu sem slegið hafa í gegn, klassísku vasableyjuna/AI2 og mjúku cloudy AIO taubleyjuna.
Allskyns blautpokar!
Við erum virkilega stolt af hágæða úrvali okkar af blautpokum. Allt frá litlum pokum upp í jumbo blautpoka sem prýðir einstaka hönnun. Jumbo pokinn er úr tvöföldu PUL efni, fullkominn undir óhreinar taubleyjur!
Dúnamjúkur bambus
Vissir þú að við bjóðum upp á bambus muslin vörur í formi swaddle og æluklúta? Bambus vörurnar eru must have að okkar mati fyrir fyrstu dagana. Allar vörurnar okkar hafa mikilvægar vottanir fyrir mikilvægasta fólkið okkar.
Vinsælir vöruflokkar
Sérvörur Noah Nappies
Noah Nappies er fyrir öll börn, ekki einungis þau sem alast upp í taubleyjum
Hinn umtalaði taubleyjuþvottur!
Þvottur er oftar en ekki það fyrsta sem fólk vill skilja betur þegar kemur að taubleyjum og það er fullkomnlega eðlilegt. Eins og með annan þvott vill maður fara rétt...
Allt um rakadrægni
Rakadrægni getur verið stór þáttur í ákvarðandatöku foreldra um notkun taubleyja. Efnin sem í boði eru geta verið ansi mörg með ólík nöfn en tegundir innleggja einnig. Því getur innbyrði...
Fastar hægðir eiga heima í klósettinu!
"úff... hvað gerir þú við kúkinn?" "Oj þarftu að pikka kúkinn úr bleyjunni?" "Það er miklu þægilegra að loka bara kúkableyjunni og henda henni í ruslið" Ofangreindar setningar eru ansi...
Svör & Ráðleggingar
Taubleyjum fylgja allskyns pælingar, hér eru svör við nokkrum algengum spurningum
Hver er heilsufarslegur ávinningur taubleyja?
Umhverfisógnin sem stafar af ruslbleyjum er raunveruleg sem við öll vitum núorðið af. Óháð umhverfisvænu sjónarmiði eru kostir taubleyja gífurlega margir en þó helst heilbrigði. Í ruslbleyjum má finna ýmis óskynsöm efni sem eiga enga samleið með viðkvæmum litlum kroppum. Ofangreind efni smitast til barns úr rakadrægum perlum sem safna þvagi í sig sem liggja undir líningu ruslbleyja. Þegar perlurnar eru orðnar mettar af þvagi þrýstist efnablandað þvag úr perlunum þegar barnið sest á rassinn og fer upp á yfirborð ruslbleyjunnar. Þá liggur fyrir að viðkvæma bleyjusvæði barnanna okkar, sem gefur greiða leið inn í líkamann, er orðið berksjaldað fyrir efnum sem geta valdið misalvarlegum heilsufarskvillum til lengri tíma eða í framtíðinni, samkvæmt rannsóknum.
Ég hef áhuga en veit ekki hvar ég á að byrja!
Þú þarft ekki að vita allt um taubleyjur né eiga heilt safn af þeim til þess að byrja. Við mælum með því að þú velur þér taubleyju sem þér finnst falleg, kaupir hana og prófir. Það er nefilega ekki flóknara en það, að láta vaða! Vissulega er hægt að sanka fróðleik að sér en til þess að öðlast skilning á taubleyjum er lang best að prófa þær. Við mælum einnig með því að prófa að kaupa mismunandi týpur af taubleyjum og í framhaldinu er hægt að færa sig yfir í það taubleyjukerfi sem mest heillar.
Er munur á taubleyjum fyrir dag og nótt?
Tæknilega séð nei. Þú getur notað nær allar taubleyjur sem næturbleyjur en þarft hinsvegar að bæta við rakadrægni. Þegar er talað um rakadrægni er vísað í innlegg, ýmist úr hemp, bambus eða bómull. Með þeim hætti breytir þú "dagbleyju" yfir í "næturbleyju". Börn pissa mismikið á nóttunni og fer það algjörlega eftir hverju og einu barni hversu mikið af rakadrægni þarf að vera til staðar. Okkar uppáhalds nætur"combo" er Premium Cloudy AIO bleyjan okkar með töfalda hemp og bambus innlegginu í vasanum.
Hvernig er þvotti og óhreinatauinu háttað?
Fyrstu mánuði í lífi barns mætti segja að taubleyjulífið sé "einfaldast" að okkar mati. Börn sem eru einungis á brjósti eða pela hafa vatnsleysanlegar hægðir, því mega óhreinar taubleyjur fara beint inn í þvottavél. Þegar börnin byrja á fastri fæðu breytast hægðirnar og þá þarf að fjarlægja hægðir úr bleyjunni áður en þvottarútínan er hafin. Umönnunaraðilar hafa margar ólíkar leiðir til þess að fjarlægja hægðir úr taubleyjum en það lærist hægt og rólega. Oftast dugar að opna taubleyjuna yfir klósettinu og leyfa hægðum að detta í klósettið eða fjarlægja þær með smá klósettpappír. Í framhaldi eru allar óhreinar bleyjur settar í óhreinatauið eða beint í þvott. Hægt er að geyma óhreinar taubleyjur í t.d. jumbo blautpokanum okkar sem hefur tvöfalt PUL efni sem spornar gegn því að lyktin smitist út fyrir pokann. Þvottarútínan stafar einnig af persónulegri reynslu hjá hverjum og einum en við mælum með þessari þvottarútínu:
- Kalt skol með litlu magni af ilmefnalausu þvottaefni
- 60° langur þvottur með ilmefnalausu þvottaefni
- Kalt skol án þvottaefnis til þess að skola allt þvottaefni úr bleyjunum.
- Allt hengt upp til þerris, innlegg mega fara á hæsta hita í þurrkara.
Taubleyjurnar mínar leka, hvað get ég gert?
Það geta verið margar ástæður fyrir leka. Ef við göngum út frá því að bleyjurnar eru í góðu standi og eru frá Noah Nappies eða öðru svipuðu vörumerki höfum við þessi ráð að gefa:
- Fáðu aðstoð við að stilla bleyjuna í rétta stærð. Bleyjurnar eru "one-zise" sem þýðir að þær geta passað á stór sem smá börn ef rétt stilling er valin. Stærðirnar breytast þegar smellunum að framan er smellt saman. Endilega sendu okkur mynd af barninu í bleyjunni ef þú ert óviss.
- Veldu rétta rakadrægni. Oft vantar að bæta við innleggi eða búster. Margir umönnunaraðilar taubleyjubarna byrja að upplifa leka með aldri barnsins en það stafar oftar en ekki af auknum þvagútskilnaði barns og því þarf að auka rakadrægnina í takt við það.
- Ekki nota krem með zinki í eða innlegg sem hafa smitast af zinki. Zink er vatnsfráhindrandi og ef slíkt hefur smurst í taubleyju eru eiginleikar hennar af skornum skammti og leki getur orðið.
- Reyndu að fylgjast með því hvaða partur af taubleyjunni fyllist hraðast af þvagi. Jafnvel er bleyjan að leka þó partur af bleyjunni/innlegginu er enn þurr? Strákar væta bleyjur framarlega og stelpur oftar fyrir miðju eða jafnvel að aftan ef þær sofa á bakinu. Við mælum með því að brjóta saman 4 laga bambus booster og setja á svæðið sem barnið vætir sem mest.
- Raðaðu innleggjunum þínum rétt! Innlegg er ekki það sama og innlegg en neðst ætti ríkasta rakadrægnin að vera staðsett sem er hemp. Því ofar ætti að efni að vera sem dregur vökva hraðar í sig en hemp t.d. bambus eða bómull.
Hefur þú áhuga á Noah Nappies?
Vilt þú hafa áhrif?
Við erum alltaf til í að skoða spennandi samstörf og hugmyndir frá viðskiptavinum. Vörumerkið er í hraðri uppbyggingu og þykir okkur ekkert skemmtilegra en jákvæð samvinna með frábæru fólki. Endilega hafðu samband ef þú hefur hugmynd að spennandi upphafi!