My Store

Stóri Byrjunar Pakkinn

62.140 kr 55.926 kr Útsala
Vsk er innifalinn

Í stóra pakkanum er fullkomið byrjunar magn af taubleyjum og aukahlutum. Við mælum með því að prófa fleiri en eina týpu af taubleyju þegar taubleyjuvegferð hefst og því má finna tvær týpur af Noah Nappies taubleyjum í pakkanum. Hér er hægt að lesa um Premium AI2 vasableyjuna og hér um Premium Cloudy AIO bleyjuna.

Noah Nappies vörurnar eru hannaðar og framleiddar með væntumþykju í huga bæði gagnvart yngstu kynslóðinni og jörðinni. Bleyjan er vasableyja með margnota eiginleika til þess að koma til móts við allar þær óskir sem taubleyjuforeldrar og dagforeldrar sækjast eftir. Bleyjurnar stækkar með barninu og passa frá 3kg upp í 18kg! Mikilvægt er þó að hafa í huga að börn eru jafn misjöfn eins og þau eru mörg og ekki alltaf hægt að stóla á tölur. 

Öll efni Noah Nappies hafa fullt hús af vottunum, meðal annars Oeko-tex og GOTS.

Í pakkanum eru eftirfarandi vörur og hægt að lesa betur um vörurnar hér að neðan:

4 x Premium AI2 vasableyjur
4 x Premium Cloudy AIO bleyjur
2 x 8 laga bambus innlegg
2 x 4 laga bambus búster
2x Bambus velúr þurrkur 5 pk.
1 x Medium blautpoki
1 x Lítill blautpoki

Munstur: Mommy Goose

Pickup available at Noah Nappies

Usually ready in 24 hours

Munstur: Mommy Goose

Vöruupplýsingar

  • Þvotta rútína: Skilaðu kúknum í klósettið og geymdu bleyjuna í blautpoka eða fötu/bala o.s.frv. Við mælum með köldu skoli til þess að byrja með. Eftir skolið ráðleggjum við heitt 40°-60° langt þvottaprógram. Fyrir almennar barnavörur dugar að þvo við 30°-40° í einföldum þvotti.

  • Þurrkari: Við ráðleggjum að taubleyjur séu hengdar upp til þerris þó þær megi fara á kalt prógram í þurrkaranum. Bambus muslin vörur & innlegg mega fara á heita stillingu í þurrakarnum. PUL vörur (blautpokar & skiptimottur) skulu hengjast upp.

  • Notist ekki við: Klór eða mýkingarefni. Krem sem innihalda sink minnka rakadrægni bleyjunnar þar sem sink er vatnsfráhindrandi. 
  • Ytra lag: Í Noah Nappies taubleyjum, blautpokum og skiptimottum er endurunnið 100% Polyurethane (PUL). Innleggin eru úr náttúrulegum efnum svo sem bambus terry blöndu eða hemp & bómullarblöndu.

  • Innra lag: Taubleyjurnar frá Noah Nappies hafa stay dry innra lag sem er 100% polyester, Award Wicking Jersey (AWJ). Cloudy AIO taubleyjan hefur ísaumað fjögurra laga bambus/terry innleggi.

  • Oeko-tex standard 100 certified and contain no harmful chemicals
  • Noah Nappies taubleyjurnar eru "one size" og eru hannaðar til þess að endast barninu þínu út bleyjutímabilið (öll börn eru þó misjöfn).

  • Bleyjurnar passa á börn frá 3,5kg - 18kg.

  • Fjórar stærðar stillingar eru í boði. Til þess að minnka bleyjuna er hægt að smella henni saman að framan.