1 4

My Store

Follow The Bears Multiuse Premium Pocket Nappy

5.490 kr
Vsk er innifalinn

Noah Nappies vörurnar eru hannaðar og framleiddar með væntumþykju í huga bæði gagnvart litlu kynslóðinni og jörðinni. Bleyjan er vasableyja í nýjum búning með margnota eiginleika til þess að koma til móts við allar þær óskir sem taubleyjur foreldrar og dagforeldrar sækjast eftir. Bleyjan stækkar með barninu og passar frá 3kg upp í 20kg! Mikilvægt er þó að hafa í huga að börn eru jafn misjöfn eins og þau eru mörg og ekki alltaf hægt að stóla á tölur.

Öll efni Noah Nappies eru með fullt hús af vottunum meðal annars Oeko-tex og GOTS.


Eiginleikar

  • Magavörn: Þetta er flipi sem er  sérhannaður til að draga úr óþægindum af völdum franska rennilása (velcro) á maganum, sérstaklega fyrir virk börn eða þau sem oft velta sér á magann.

  • Góð lekavörn og kúkasprengjuvörn!: Bleyjan er með tvöfalda teygju utan um lærin og breiða bakteygju sem kemur í veg fyrir leka og 💩 segi hæ útfyrir sitt leyfilega svæði.

  • Stay Dry Wicking Jersey efni: Efnið upp við húð barnsins er kallað wicking jersey og líkist efni íþróttafatnaðs. Efnið er þekkt fyrir viðeigandi eiginleika sína í taubleyjunotkun en það er að halda húðinni þurri og svalri. Wicking jersey hefur verið að brillera sl. árið í taubleyju heiminum og hafa mörg hver vörumerki breytt yfir í þetta efni. Börn með viðkvæma húð hafa oft á tíðum verið að bregðast betur við wicking jersey efninu heldur en öðrum efnistýpum og mætti því segja að efnið sé gott fyrir viðkvæma húð. Að auki hafa taubleyjuforeldrar tjáð að kúkur festist síður í efninu og fellur betur í klósettið úr bleyjunni. 

  • Einstaklega mjúkt og endurunnið PUL efni: Ytra efni taubleyjunnar kallast PUL efni og er mögulega eitt af því mýksta og sveigjanlegasta PUL efnum sem finnst á markaðnum í dag. Mikið var lagt upp úr því í vöruþróuninni að PUL efnið væri með þessa eiginleika en það gerir bleyjunni kleift að vera fyrirferðarlítil og betri hreyfanleiki fyrir barnið. Með því að kaupa þessa bleyju ert þú að bjarga 5 plastflöskum frá umhverfinu sem eru endurunnar í þessa taubleyju.

  • Mjúkur riflás: Gerir allt miklu þægilegra og kemur í veg fyrir óþægindi barns. Riflásinn gefur eftir fyrir bumbu barnsins og gerir því kleift að líða vel í bleyjunni á meðan barnið situr, skríður eða jafnvel hleypur og leikur sér. Riflásinn kemur einnig í veg fyrir að dagforeldrar, leikskólakennarar eða aðrir fjölskyldumeðlimir setji taubleyjuna rangt á barnið sem veldur óþægindum. Dagforeldrarnir / leikskólakennararnir verða vonandi glaðir að sjá riflás bleyju með barninu þínu næsta virka dag!


  • Margnota bleyja á svo marga vegu: Þú getur notað bleyjuna á amk tvo vegu. Settu innleggið / innleggin í vasann á bleyjunni og notaðu stay dry efnið upp við húð barnsins. Fliparnir sem loka innleggið inni eru tveir en þeir koma í veg fyrir að kúkasprengjur rati út fyrir bleyjuna. Þú getur einnig lagt bústerinn ofan á bleyjuna en innri teygjurnar eru hannaðar til þess að Noah Nappies bústerinn komist á milli teygjanna.

  • Tvö mjög þyrst bambus & hamp innlegg fylgja bleyjunni: Eitt stórt innlegg og einn búster fylgir taubleyjunni. Í okkar huga, höfum við hannað hið fullkomna jafnvægi af rakadrægni fyrir þig. Langa innleggið er brotið í tvennt en það samanstendur af 4 laga bambus blöndu og 4 laga hamp blöndu. Við mælum með því að láta bambus hliðina snúa upp því bambus dregur vökva hraðar í sig en hampur heldur meiri vökva en bambus. Bústerinn er 4 laga bambus blanda. Ef þú kýst að nota öll innleggin samtímis ert þú komin með rakadræga næturbombu í einni bleyju!

Þvottur & umhirða 

  • Þvottarútína: Skilaðu kúknum í klósettið og geymdu bleyjuna í blautpoka eða fötu/bala o.s.frv. Við mælum með köldu skoli til þess að byrja með. Eftir skolið ráðleggjum við heitt 40°-60° langt þvottaprógram.

  • Þurrkari: Innleggin mega fara á fullan hita í þurrkrann en við ráðleggjum að taubleyjan sjálf sé hengd upp til þerris þó hún megi fara á kalt prógram í þurrkaranum.

  • Notist ekki við: Klór eða mýkingarefni. Krem sem innihalda sink minnka rakadrægni bleyjunnar þar sem sink er vatnsfráhindrandi.

Efni

  • Ytra lag: Endurunnið 100% Polyurethane (PUL)

  • Innra lag: 100% polyester, Award Wicking Jersey (AWJ)

  • Innlegg: 85% Bambus viscose 15% Polyester & Hamp bómullar blanda

  • Búster: 85% Bambus Viscose 15%

  • Oeko-tex standard 100 certified og inniheldur engin skaðleg efni. 






Pickup available at Noah Nappies

Usually ready in 24 hours

Vöruupplýsingar

  • Þvotta rútína: Skilaðu kúknum í klósettið og geymdu bleyjuna í blautpoka eða fötu/bala o.s.frv. Við mælum með köldu skoli til þess að byrja með. Eftir skolið ráðleggjum við heitt 40°-60° langt þvottaprógram. Fyrir almennar barnavörur dugar að þvo við 30°-40° í einföldum þvotti.

  • Þurrkari: Við ráðleggjum að taubleyjur séu hengdar upp til þerris þó þær megi fara á kalt prógram í þurrkaranum. Bambus muslin vörur & innlegg mega fara á heita stillingu í þurrakarnum. PUL vörur (blautpokar & skiptimottur) skulu hengjast upp.

  • Notist ekki við: Klór eða mýkingarefni. Krem sem innihalda sink minnka rakadrægni bleyjunnar þar sem sink er vatnsfráhindrandi. 
  • Ytra lag: Í Noah Nappies taubleyjum, blautpokum og skiptimottum er endurunnið 100% Polyurethane (PUL). Innleggin eru úr náttúrulegum efnum svo sem bambus terry blöndu eða hemp & bómullarblöndu.

  • Innra lag: Taubleyjurnar frá Noah Nappies hafa stay dry innra lag sem er 100% polyester, Award Wicking Jersey (AWJ). Cloudy AIO taubleyjan hefur ísaumað fjögurra laga bambus/terry innleggi.

  • Oeko-tex standard 100 certified and contain no harmful chemicals
  • Noah Nappies taubleyjurnar eru "one size" og eru hannaðar til þess að endast barninu þínu út bleyjutímabilið (öll börn eru þó misjöfn).

  • Bleyjurnar passa á börn frá 3,5kg - 18kg.

  • Fjórar stærðar stillingar eru í boði. Til þess að minnka bleyjuna er hægt að smella henni saman að framan.